Velkomin á heimasíðuna okkar!
Við erum Halldóra og Sindri Sölvabörn ;o)


Um okkur:
Við erum Halldóra og Sindri Sölvabörn og búum í Keldudal í Skagafirði ásamt mömmu, Álfhildi Leifsdóttur og pabba, Sölva Sigurðarsyni.
Halldóra er fædd 11.08.06 og Sindri er fæddur 07.07.07.
Við búum í Keldudal hjá ömmu Stínu en pabbi er að vinna á Hofi á Höfðaströnd við þjálfum hesta en mamma er kennari.

http://s3.frontur.com/img/45915/20090611111434_4.jpg




Stórfjölskyldan:

Það eru mjög stórar fjölskyldur sem standa að okkur - sem betur fer!

Pabba fjölskylda er svona:
Afi okkar heitir Sigurður Sigurðarson og er dýralæknir og amma okkar hét Halldóra Einarsdóttir en við misstum hana frá okkur þann 26. ágúst árið 2000.
En við erum svo heppin að eiga í staðinn hana Ólöfu Erlu Halldórsdóttur sem passar upp á afa.
Pabbi er yngstur af fjórum systkinum, elstur er Sigurður - Siggi, en hann á tvö börn úr fyrra sambandi, þau Róbert og Rakel Dóru en með konu sinni
Sigríði Arndísi Þórðardóttur á hann Sigurð Matthías, en Sigga á líka snillinginn Vilborgu Maríu og búa þau á Þjóðólfshaga. Og svo fæddist hann Dagur 16. nóvember
- engin smá stórfjölskylda þar!
Ragnhildur er svo næst í röðinni en hún á kallinn Þorvarð Friðbjörnsson og sætu dæturnar Hildi Kristínu og Lilju. Þau búa í Mosfellsbæ.
Einar er svo næst yngstur og var hann svo heppinn að krækja í hana Steingerði Ingvarsdóttur sem átti fyrir Daníel Frey og Elíabet Líf en svo eiga
þau saman Ingvar Sverri mótorhjólapúka. Þau búa öll saman í Mosfellsbæ.

Mömmu megin er þetta svona:
Amma heitir Kristín Bára Ólafsdóttir og hefur hún verið bóndi í Keldudal í næstum 50 ár ásamt afa, en hann hét Leifur Hreinn Þóarinsson og misstum við
hann frá okkur þann 27. ágúst 2006. Þau eignuðust 6 börn sem hafa alveg staðið sig við að unga út barnabörnunum:
Elst er Ólöf Elfa, hún býr á Akureyri með sínum kalli, Alfreð Schiöth og syninum og mennskælingnum Axel Aage. Dóttir þeirra Kristín Helga sem er árinu eldri
en Axel, er flutt að heiman til að stunda nám við Háskóla Íslands íásamt kærasta sínum, Ottó Elíassyni
Stefanía Hjördís er svo næstelst, hún er bóndi á Brúnastöðum í Fljótum ásamt sínum manni, Jóhannesi Ríkharðssyni og eiga þau 4 börn, Ríkeyju Þöll,
Kristinn Knörr, Ólaf Ísar og Leif Hlé.
Þórarinn býr í Keldudal með Guðrúnu Lárusdóttur og eiga þau Þórdísi, Sunnu og Þorra.
Kristbjörg býr í Hafnafirði ásamt kalli sínum Magna Þór Samsonarsyni og eiga þau Mána Þór, Loga Má og hana Vöku Magndísi sem er yngst í fjölskyldunni.
Guðleif er svo næst yngst, hún býr í Mosfellsbæ með honum Eysteini Leifssyni og eiga þau drengina Leif Inga og Dag og prinsessuna Kristínu Maríu.

Mamma er svo líka örverpi eins og pabbi :o) Þetta er sko engin smá upptalning á því eðalfólki sem er í kringum okkur - við heppin ;o)





HALLDÓRA - LJÓN 11. ágúst
Lilypie 3rd Birthday Ticker

Konungurinn í frumskóginum er mættur og vill einmitt vera meðhöndlaður í samræmi við tign sína. Litla ljónið þarfnast athygli (við erum að tala um að
vera alltaf miðdepill athyglinnar!) og vill láta taka eftir sér og láta dást að sér. Það getur verið mikil vinna að eiga börn í ljónsmerkinu.
Börnin eru oft hávaðasöm og mjög opin í tjáningu. Ef barnið er ánægt er það yndislegasta og fallegasta barn í heimi en ef það er óánægt öskrar það
og lætur öllum illum látum. Heimilislífið kemur til með að snúast mikið í kringum kraftmikinn ljónsungann sem getur verið mjög stjórnsamur og frekur.
Það þýðir ekki að segja ljóninu að læðast meðfram veggjum því slíkt er andstætt eðli þess og er ekki til annars en að brjóta það niður.
Vingjarnleg ákveðni er það sem dugar best. Ljónið er merki stjórnunar og foreldrar þurfa að virða þörf þess fyrir persónulegt sjálfstæði og því er
gott að fela því snemma ábyrgð. Mikilvægt er að kenna því að taka tillit til annarra. Það þarf að taka tillit til þess í uppeldi að ljónið er einstakt og
veita því athygli, hvatningu og ekki síst að hrósa því þegar það hefur gert eitthvað jákvætt.




SINDRI KRABBI 7. júlí
Lilypie 2nd Birthday Ticker

Börn í krabbamerkinu eru oft mjög viðkvæm og foreldrar mega búast við að mörg tár muni falla í bernsku. Þau hafa því ríka þörf fyrir hlýju og snertingu
auk þess sem öryggi skiptir þau gríðarlega miklu máli. Líf þeirra þarf að vera í föstum skorðum og umhverfið gott. Foreldrar barna í krabbamerkinu
ættu ekki að rífast mikið í þeirra návist því þau taka allt mjög nærri sér og eru oft lengi að ná sér á strik eftir áföll. Krabbar byrgja oft tilfinningarnar
inni og því er mikilvægt að tala við þau um tilfinningar. Dæmigert krabbabarn man alla tíð eftir því þegar það týndist í Hagkaup í tvær mínútur
og tekur því sem höfnun. Krabbinn er oft mislyndur og misjafn í skapi, ýmist hress og jákvæður eða þungur og dregur sig inn í skel. Hann er oft
rólegur og hlédrægur en getur gosið upp annað slagið vegna þess hve viðkvæmur hann er. Það þarf að umgangast hann af nærgætni og það er
ekki sama hvað sagt er við hann og hvernig. Hann tekur margt nærri sér og er móðgunargjarn. Hann er gjarn á að geyma gremjuna innra með
sér og láta á engu bera á yfirborðinu. Foreldrar þurfa því að hvetja litla krabbann til að segja frá því sem honum mislíkar. Mestu skiptir að
skapa krabbanum öruggt heimilislíf, veita honum hlýju og gefa honum kost á að tjá tilfinningar sínar, t.d. með því að leyfa honum að eiga gæludýr.
Þú ert gestur nr. 3476